29mars
stjörnuspá dagsins á mbl.is er svo hljóðandi:
Vatnsberi: Þú getur gert eitthvað til að hjálpa samfélaginu. Taktu í framréttar hendur vinnufélaga þinna og sjáðu, hversu létt verk margar hendur vinna.
þetta var nákvæmlega það sem ég gerði í dag ... tók í framréttar hendur vinnufélaga á landsfundi og hendurnar mörgu léttu verkið svo sannarlega!!
Fallegt
Hildur OUT!
10mars
jæja - þúsund og þrjú ár frá síðasta bloggi ... ýmislegt búið að gerast - ég búin að eiga afmæli - búin að búa i bílnum mínum - komin með hurðar heima hjá mér - og margt fleira skemmtilegt ... þó standa allar stundirnar með yndislega fólkinu sem ég þekki uppúr!! Ég er svo rík af yndislegu fólki!!! Takk allir fyrir allt alltaf ... þið vitið hver þið eruð fólk!
á ykkur!
vinnan gengur mjög vel - er bara að verkefnastjórast á fullu og reyna að networka eins og mér sé borgað fyrir það (sem er reyndar staðreyndin) ...og það gengur svona líka voða vel ... 
~~~~~
en svo svona rétt bara aðeins vegna þess að ég var að ræða við tvær vinkonur mínar rétt í þessu um ákveðið málefni ... og bara svona til að empower konur um allt ... langar mig að smella textanum af laginu hennar Christinu Aguilera hérna inn .... allir - lesið og njótið!!!!
So what am I not supposed to have an opinion
Should I be quiet just because Im a woman
Call me a bitch cos I speak whats on my mind
Guess its easier for you to swallow if I sat and smiled
When a female fires back
Suddenly the target dont know how to act
So he does what any little boy will do
Making up a few false rumors or two
That for sure is not a man to me
Slanderin names for popularity
Its sad you only get your fame through controversy
But now its time for me to come and give you more to say
This is for my girls all around the world
Whove come across a man who dont respect your worth
Thinking all women should be seen, not heard
So what do we do girls?
Shout louder!
Letting them know were gonna stand our ground
Lift your hands high and wave them proud
Take a deep breath and say it loud
Never can, never will, cant hold us down
\nobody can hold us down
Nobody can hold us down
Nobody can hold us down
Never can, never will so what am I not supposed to say what Im saying
Are you offended by the message Im bringing
Call me whatever cos your words dont mean a thing
Guess you aint even a man enough to handle what I sing
If you look back in history
Its a common double standard of society
The guy gets all the glory the more he can score
While the girl can do the same and yet you call her a whore
I dont understand why its okay
The guy can get away with it & the girl gets named
All my ladies come together and make a change
Start a new beginning for us everybody sing
This is for my girls all around the world
Whove come across a man who dont respect your worth
Thinking all women should be seen, not heard
What do we do girls?
Shout louder!
Letting them know were gonna stand our ground
Lift your hands high and wave em proud
Take a deep breath and say it loud
Never can, never will, cant hold us down lil kim:
Check it - heres something I just cant understand
If the guy have three girls then hes the man
He can either give us some head, sex her off
If the girl do the same, then shes a whore
But the tables about to turn
Ill bet my fame on it
Cats take my ideas and put their name on it
Its aiight though, you cant hold me down
I got to keep on movin
To all my girls with a man who be tryin to mack
Do it right back to him and let that be that
You need to let him know that his game is whack
And lil kim and christina aguilera got your back
But youre just a little boy
Think youre so cute, so coy
You must talk so big
To make up for small lil things
So youre just a little boy
All youll do is annoy
You must talk so big
To make up for small lil things
This is for my girls...
This is for my girls all around the world
Whove come across a man who dont respect your worth
Thinking all women should be seen, not heard
So what do we do girls?
Shout louder!
Letting them know were gonna stand our ground
Lift your hands high and wave em proud
Take a deep breath and say it loud
Never can, never will, cant hold us down
This is for my girls all around the world
Whove come across a man who dont respect your worth
Thinking all women should be seen, not heard
So what do we do girls?
Shout louder!
Letting them know were gonna stand our ground
Lift your hands high and wave em proud
Take a deep breath and say it loud
Never can, never will, cant hold us down
Spread the word, cant hold us down
Hildur is spreading the word!!!!
02febrúar
ef ég ætti að velja mér ár - myndi ég 100% velja mér 25 ... nei meina 18 í sjöunda sinn!!! held það sé alveg á hreinu!!
hvílíkt ár að baki ... nú er nefninlega alveg að koma að áramótum - þar sem 18 í sjöunda sinn mætir 18 í áttunda sinn ... ég vona að 18 í áttunda sinn verði alveg jafn æðislegt og í sjöunda sinn ... sýnist málið vera að verða bara nógu oft eitthvað ákveðið gamall/gömul og þá fer maður að ná tökum á þessu ... læra af gömlum mistökum og svona - í stað þess að byrja alltaf upp á nýtt á hverjum einustu áramótum og eiga á hættu að gera byrjendamistök, því maður hefur aldrei verið x gamall áður!!
~~~~~
er nú alls ekki svo langt síðan ég gerði 2008/2009 annál - þannig að ég ætla nú í sjálfu sér ekkert að fara að gera einhvern annan voða annál - þó þetta séu auðvitað miklu merkilegri áramót að mörgu leyti
hvað er svona það merkilegasta sem ég-in ykkar gerði á þessu ári - jú það er svona þetta venjulega, kláraði skólann, fór til Indlands, kom aftur heim og svona allskonar æði - en mér finnst ég lika hafa unnið marga persónulega sigra, sem gera það að verkum að ég er mega múshí múshí í dag ... svo ofsalea hamingjusöm að það er næstum því hættulegt held ég
svona til að gera svakalega langa sögu stutta þá má segja að ég hafi fundið Hildi á þessu ári sem er liðið frá síðustu áramótum ... er það ekki bara massa góð saga?
~~~~~~~
hvað ætlar hún Hildur að gera á nýársdag (á morgun) gætir þú verið að spyrja þig akkúrat þessa stundina -
ég get sko sagt þér það!!
ég ætla að mæta í vinnuna mína á morgun!
glænýju vinnuna mína - draumavinnuna mína - sem ég held að ég sé orðin ástfangin af - þegar Oddný mín sendi mér auglýsinguna held ég að það hafi verið ást við fyrstu sýn ... svei mér þá - ég vissi að hún yrði mín ... því við erum búnar til fyrir hvor aðra (þ.e. ég og þessi vinna) ... segi ykkur meira frá henni seinna
en ef þið viljið lesa um hana þá getið þið skoðað heimasíðuna hér
og svo ætla ég örugglega að gera eitthvað voða krúttó og nýárslegt ... jebs jebs jebs ...
verð ég þá ekki að gera eitthvað voða kreisí og gamlárskvöldslegt í kvöld? vó vó vó! var ekki búin að pæla í því ...
jæja farin að pæla í því ... held ég geri það í göngutúr!!
Hildur OUT of 18 í sjöunda sinn og IN í 18 í áttunda!!!
22janúar
ætla ekkert að vera að tjá mig neitt svakó um ástandið - nema bara þetta eina sem pirrar mig pons ... fréttin er alltaf *mótmælendur vs. löggan* eins og mótmælendur séu að mótmæla lögreglunni ...
hvers vegna er fréttin ekki *hvað þarf almenningur að gera til að ráðamenn hlusti?* eða *hvað ætla ráðamenn að leyfa þessu að ganga langt?*
Mér finnst kjarni málsins gleymast og fólk að tapa sér í að dæma átökin sem koma óhjákvæmilega upp á milli þessara aðila. Almennt hefur það samt verið undantekning en ekki regla að eitthvað komi upp á, þessar undantekningar eru samt bara það sem er fréttnæmt.
Hildur OUT!
12janúar
ég er svona draumastelpa... þúist dreymir ofsa margt ..
t.d. var mig búið að *dreyma* um að dreamgirls væri ÆÐISLEG mynd ... svo eyddi ég rómantískri kvöldstund með sjálfri mér og var að klára að horfa á myndina og ég verð að segja - hún er alveg tvö svekk ...hún er alveg góð, en mér finnst vanta of margt í hana ...finnst hún vera meira svona útdráttur af ofsa góðri mynd ... dreamgirls væri örugglega GEGGJAÐ leikrit með engu svekki ...góð tónlist ... eiginlega skemmtilegast að lagið *one night only* sé í myndinni - því það er svo oft á *nýju* uppáhaldsstöðinni minni E! entertainment ...
ég væri heldur ekkert á móti því að fara á leikrit með þessum leikurum - VÓ!!
- þá er kvikmyndagagnrýni hildar lokið ... hvað þykist ég annars vita?
jennifer fékk alveg óskarinn og allt fyrir þetta hlutverk ...
er bara ekki með neinn hérna hliðina á mér til að ræða þetta og ákvað *þexna* að henda þessu bara hingað inn - svona eins og maður gerir
~~~~~~
eyddi gærnótt með ofsa heitum manni ... við vöktum lengi lengi og horfðum á Golden Globes, bæði *red carpet* og svo verðlaunaafhendinguna sjálfa ...
niðurstöður kvöldsins eru að Kate Winslet er líklega ein fallegasta kona alheimsins
og svo svona aukalega að ég er byrjuð með colin farrel og hann með jake gyllenhal
JELSKAÐ HORFÁ GOLDEN GLOBES!!!
... bara stutt núna - en það er ekkert endilega verra ...
Hildur OUT!
31desember
ég trúi ekki að árið sé bara að fljúga út um gluggann og nýtt að hefjast!
djúsís kröjst - og pabbi segir að tíminn fari að líða hraðar þegar the big three o skellur á!
úfff - mikið er ég fegin að vera þá bara ennþá 18 (í x. sinn) því þá lengist í að tíminn fari að líða svona hratt ...
smá svona *litið um öxl* örstutt
janúar: aðallega bara að ganga frá lausum endum fyrir hina ógleymanlegu námsferð
febrúar: hin ógleymanlega námsferð og ég varð 18 í sjöunda sinn OG útskrifaðist með MA í alþjóðasamskiptum og má þess vegna kalla mig *alþjóðastjórnmálafræðing* BÚJA! a um
mars: hmmm .. hvað gerðist í mars? ætli ég hafi ekki bara verið mest í skólanum, jú jú segjum það bara... líst ofsa vel á það
apríl: líka örugglega bara voða mikið í skólanum, og að vinna að einu mega spennandi verkefni, sem ég fer vonandi bráðum að leggja total lokahönd á
maí: undirbjó smá málþing og kom í ríkisútvarpinu að tala um meistararitgerðina mína *búja*. Ég horfði líka á Eurovision eftir að gæsa Svönulinginn
júní: mætti segja að þetta hafi alveg verið aðal mánuðurinn, Svana og Davíð giftust og ég fékk þann yndislega heiður að vera veislustjóri *KYSS* FYRIR ÞAÐ MÍN YNDISLEGU! Svo var afmælisveisla aldarinnar einnig haldin í júní - Anna og Róbert náttúrulega alltaf svo grand. Að lokum mætti kannski minnast á að ég útskrifaðist aftur frá Háskólanum, nú með réttindi til að kenna - já ég er alþjóðastjórnmálafræðingakennari (vó - fer að verða lengra en langa orðið sem endar á lyklakippuhringurinn og er eitthvað um vegavinnu skúr á vaðlaheiðinni)
já - smá innskot líka: Páll Óskar söng fyrir mig eina í garðakirkju, þegar hann var að hita upp fyrir athöfnina og ég var ein mætt ... vá hvað það var fallegt!!!
júlí: fyrrihlutinn - bara eitthvað að skottast, seinni hlutinn; að undirbúa ferð til Indlands, alveg þúsund milljón sprautur og mega keis, fór út alveg í lok mánaðarins.
ágúst: eyddi mánuðinum í Indlandi, fór í ferðalag til Kerala
september: Indlandaðist, fór í ferðalag til Hampi
október: fór í ferðalag um Norð-vestur Indland (ef ég fer að skrifa um eitthvað annað en ferðalögin, þá verður þetta bara færsla aldarinnar, bendi bara á eldri blogg, frá ágúst, sept og okt.)
nóvember: fór frá Indlandi, eyddi viku í Parísinni og kom heim ... mesta sjokkið var parket á gólfum - sem þó hefur verið á gólfinu heima hjá mér meirihluta ævinnar minnar. Hitti fólk og eignaðist nýja vini, og leitaði að vinnu.
desember: skemmtilegasti og skrýtnasti desember sem ég hef upplifað, engin próf og næstum ekkert stress (takk SIlja Bára fyrir að redda mér smá stress fixi!!!!). Ég hef sjaldan skemmt mér jafn vel í desember eða gert jafn mikið ... takk öll þið sem eigið þátt í að gera desember að yndislegum mánuði!!!! *KYSS* fyrir það ...
og nú er bara nýtt ár að ganga í garð - ég var með allskonar hugmyndir um hvernig árið 2008 myndi fara þegar það byrjaði, en viti menn, það fór bara alls ekki neitt eins og ég hafði hugsað mér ... ekki neitt - eina sem stóðst var að Svana og Davíð giftu sig .. og jú að námsferðin var æði (gekk samt bæði betur eftir en ég þorði að vona)
núna veit ég bara ekkert hvað ég á að halda með næsta ár og er ekki með neinar hugmyndir um neitt eða neitt ... mikið verður spennandi að sjá hvað gerist
ííííík er öll að farast úr spenningi!!!
en núna ætla ég að fara að tana mig í drasl, svo ég verði nú fólki bjóðandi í gleðskap í kvöldinu
love to all!!!
Hildur OUT of 2008!
19desember
ég ætlaði að breyta um dagin ... segja - *hey mér finnst alveg baggalútur vera með skemmtileg jólalög, þó það séu útlensk lög sem eru ekki jólalög sem þeir gera að jólalögum* (vó flókin setning, en mér er alveg sama núna) ... en svo ákvað ég að vera ekkert að breyta neitt ... því þeir gætu líka gert þessa snilldartexta við bara sín eigins lög og þá væru þessi jólalög GEGGJUÐ en ekki bara OK (skemmtileg í mesta lagi)
~~~~~~~
ok og annað - ég hef lengi lengi verið að velta þessu fyrir mér og í dag tók ég ákvörðun, sem ég held mig við ... ég ætla að vera þung/létt í kg en léttast um lbs (amerísku pounds) ...
þá vitið þið það ...
bless á meðan ...
Hildur OUT!!!
09desember
http://admin.bloggar.is/ablog/form...
Nánar
04desember
er öll að vinna í að koma mér í jólagírinn þessa dagana - erfitt þegar það er ekki prófstress eða verkefnavinna á fullu stóran eða lítinn hluta af desember ...
ég er komin með smá mission: mission christmas mood!
jólalögin eru svona að hrynja inn ... og jólaskrautið að fjúka upp ... þetta ætlar eitthvað að ganga - en ekki eins hratt og venjulega ... kannski er það líka vegna þess að það er eiginlega ponsu ennþá smá ágúst í mínum huga ... ég fór einhvern vegin á pásu þegar ég fór til indlandsins og það er svona alveg að slefa í sept þessa dagana - lengsti ágústmánuður í sögu ágústmánaða ...
en þarf samt aðeins að fá að ræða tvennt... var aðeins að ræða þetta rétt áðan
#1) hvers vegna í ósköpunum taka íslenskir listamenn erlend lög - sem eru btw ekki jólalög og gera þau að íslenskum jólalögum???? HVERS VEGNA????
fullt af góðum lögum sem mér finnst æði - en þegar ég heyri þau á útlenskunni og það er ekki jólatími þá koma íslensku jólalögin í hugann!!! WHY???? i don't like this @ all!!!
#2) og svo hitt ... sem er samt eiginlega alveg orðinn hluti af jólunum, þarf að skipta af þessu lagi á aðra stöð eða annað lag allavega 2-3x á jóalalagavertíðinni .. hvar er fegurðin í "ef ég nenni?" - ef ég NENNI??? eiginlega bara nenni ekki að hlusta á þetta lag ...
getur einhver útskýrt þetta fyrir mér? (þ.e. fegurðina og jólin í "ef ég nenni")
kannki er ég bara ýkt mikið að mis ... og þetta er voða fallegt jólalag en ég þarf bara ponsu pínu aðstoð við að sjá það - getur þú hjálpað mér??
Hildur OUT!
26nóvember
blogg segiði - tjah - finnst einhvern veginn eins og hversdagsleikinn á íslandi sé ekki eins frásagnaverður og hið óhversdagslega líf í Hyderabad ...
hvað hefur á daga mína drifið ... jú ég hef gert ýmislegt - eins og hitt vini - meira að segja eignast nýja vini
- hitt suma - ekki alla- ættingja - verslað aðeins jólagæfur - verið lasin í fullt langan tíma, það var náttúrulega skemmtilegast - byrjað aftur í boot camp (samt ekki af eins miklum krafti og ég óskaði mér vegna þess sem ég skrfaði hérna á undan) - verið í sambandi við vini mína í Indlandi og frétt ýmist slúður um fullt sem er að gerast þar - *sækt* um vinnur og bara svona þúist blabla
en það sem kannski meira er - og er mikilvægt - vegna þess að ég má aldrei gleyma að vera þakklát fyrir þessi veraldlegu gæði - ég hef farið í sturtur, heita sturtu með vatni sem lendir ofan á hausnum á mér úr *loftinu* - meira að segja verið í 5 mín í sturtu!!! - ég hef sturtað niður klósettinu mínu með takka - ég hef þvegið fötin mín í þvottavél sem ég þurfti bara að ýta á "start" en ekki fylla af vatni með fötunni minni - ég hef verið berfætt heima hjá mér á góðu parketi (en ekki *sama-hversu-mikið-þú-þrífur-það-það-verður-alltaf-skítugt* flísa gólfi) - ég hef verið ein í herbergi - ég hef sofið í herbergi sem er með sjónvarpi (kemur sér stundum vel þegar mann er aleinn í *hergerbi*) - ég hef borðað rófu - og ýmislegt annað íslenskt góðgtæti
ég hef ekki bara verið að njóta íslenskra vestrænna gæða - heldur líka verið þakklát fyrir þau!!!
note to self - ekki gleyma því!!!
síðustu helgi fór ég á skímó - með frænda mínum og hitti tvo aðra frændur mína ... og er svo ánægð með þá alla!!! *bros*
og helginni ætla ég að eyða í faðmi yndislegrar snótar sem kemur í heimsókn alla leið frá Skotlandi ... það er gamla íbúðar-félaga mín frá dögum mínum í Louisiana ... mikið verður gaman!!!!
basically - þá er ég bara að njóta lífsins ... og komin með nýja klippingu!!!
hamingja
Hildur OUT!