draumastelpa og tvö svekk
ég er svona draumastelpa... þúist dreymir ofsa margt ..t.d. var mig búið að *dreyma* um að dreamgirls væri ÆÐISLEG mynd ... svo eyddi ég rómantískri kvöldstund með sjálfri mér og var að klára að horfa á myndina og ég verð að segja - hún er alveg tvö svekk ...hún er alveg góð, en mér finnst vanta of margt í hana ...finnst hún vera meira svona útdráttur af ofsa góðri mynd ... dreamgirls væri örugglega GEGGJAÐ leikrit með engu svekki ...góð tónlist ... eiginlega skemmtilegast að lagið *one night only* sé í myndinni - því það er svo oft á *nýju* uppáhaldsstöðinni minni E! entertainment ...
ég væri heldur ekkert á móti því að fara á leikrit með þessum leikurum - VÓ!!
- þá er kvikmyndagagnrýni hildar lokið ... hvað þykist ég annars vita?
jennifer fékk alveg óskarinn og allt fyrir þetta hlutverk ...
er bara ekki með neinn hérna hliðina á mér til að ræða þetta og ákvað *þexna* að henda þessu bara hingað inn - svona eins og maður gerir
~~~~~~
eyddi gærnótt með ofsa heitum manni ... við vöktum lengi lengi og horfðum á Golden Globes, bæði *red carpet* og svo verðlaunaafhendinguna sjálfa ...
niðurstöður kvöldsins eru að Kate Winslet er líklega ein fallegasta kona alheimsins
og svo svona aukalega að ég er byrjuð með colin farrel og hann með jake gyllenhal
JELSKAÐ HORFÁ GOLDEN GLOBES!!!
... bara stutt núna - en það er ekkert endilega verra ...
Hildur OUT!
12. janúar 2009 klukkan 22:28
Hildur Björk
Hildur Björk
...kræst hvað þú hefur skelfilegan smekk á bíomyndum - Dreamgirls er ein sú versta þvæla sem ég hef augum litið - og hún er svo leiðinleg að ég íhugaði að lögsækja framleiðendurnar fyrir að eyða tíma mínum í þetta bull...
...heheh..en það er kannski gott að fólk hafi mismunandi smekk á hlutunum :)