14febrúar
JESSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSS!!!
JESS JESS JESS JESS JESS!!!! RITHÖFUNDARNIR ERU KOMNIR AFTUR!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!hvað þýðir það gætir þú spurt þig - það þýðir að Despo - Greys - Gossip Girl - og allir þeir þættir sem eru ekki í sýningu núna vegna verkfalls fara að koma aftur!!!!!!!!!!!!!!!! ÉG GETIGGI BEÐIÐ!!!!!!!!!!!
vá ... þetta er ekki bara geggjað heldur líka awesome!!!!
~~~~~~~~~~
Britney vill ekki fá forræði yfir börnunum sínum aftur - hún nennir eilega ekki að vera full time moma (hún nennir bara að vera full moma *haha skemmtilegur orðaleikur*) - hún vill bara fá að umgangast þá - en það hefur hún ekki mátt gera í meira en mánuð ....
~~~~~~~~~
Christina Aguilera neitar að vakna með baby boy sínum á nóttunni - hún lætur bara mr. Aguilera gera það - hún þarf sinn svefn takk fyrir góða nótt .... en hann gerir það með glöðu geði sko
~~~~~~~~~~
Þar síðasta sunnudag - 3. feb - átti minn afmæli - og þann dag fór ég líka til úttlanda ... og átti þar af leiðandi afmæli í 29 klst!!! geri aðrir betur! dagurinn var æðislegur - ég eignaðist fyrsta Tiffanys skartgripinn minn - mamma söng fyrir mig á BSÍ - fólkið söng fyrir mig í rútunni - ég fékk óvæntan bleikan þemapakka frá yndislegu fólki - það var skálað fyrir mér í kaffiteríunni - fékk stimpil í tilefni dagsins í vegabréfsskoðuninni - ég fékk sendar 2 kampavínsflöskur í flugvélinni - og sofnaði á ótrúlega fínu hóteli í Washington... yndislegur dagur í alle staðerne
þannig hófst námsferðin mikla sem ég ásamt 3 öðrum var að undirbúa frá því í október .... ég myndi segja að ferðin hafi verið gallalaus í allastaði - nokkurn vegin fullkomin - það gekk allt upp - vá hvað það var gaman
á mánudeginum fórum við í íslenska sendiráðið í Washington - svo fórum við að túristast - t.d. skoða Hvíta kofann (vá hvað húsið er lítið) - Lincoln memorial og nálina og Vietnam memorial og fleira - í þessari skoðunarferð tók Splendor mynd ferðarinnar sem verður sett hingað inn við fyrsta tækifæri!!) og svo fórum við í heimsókn til Dr. Thurber í American University... svo var frjáls og skemmtilegur dagur
á þriðjudeginum fórum við nokkur að skoða þinghúsið - sáum líka sal neðrideildarinnar og svo smá action í öldungardeildinni - þvílíkt spennandi! svo fórum við að skoða Georgetown University og hittum Dr. Bayman - fórum svo að borða - smá versla og svo að fylgjast með forkosningunum (Silja Báran okkar kom einmitt í fréttunum að ræða þennan dag - ógó gaman!!!)
á miggudeginum fóru allir að skoða Alþjóðabankann og Gjaldeyrissjóðinn en ég fór í próf í sendiráðinu fyrir djobb í utanríkisráðuneytinu (ræði það ekki frekar - vil ekki jinxa það) og seinna um daginn skelltum við okkur með rútu til New York - og sungum fyrir afmælisbarn þess dags - hann Snorra sem fékk amerískan þemapakka :o)
á fimmtudeginum heimsóttum við Sameinuðu þjóðirnar í öllu þeirra veldi og höfðum gaman af því ... smá sybba yfir hópnum - en sybbin en nýja svart svo það er allt í lagi .... og svo var smá versl þá aðallega í H-inu og M-inu - en ég eyddi þar dágóðum tíma með Nönnu og skemmtum við okkur konunglega að máta hverja flíkina á fætur annarri - og svo var líbanskur matur um kvöldið ... ónefndur Jón Gunnar plataði tvær ungar ónefndar stúlkur (sem gætu heitað Hildur og Oddný) til að ganga Manhattan þvera og endilagnga eftir matinn með því að segja alltaf "æ það eru bara nokkrar blokkir í viðbót" ... en það var gaman og alveg þess virði!!!
á föstudeginum heimsóttum við svo CNN - þar sem við fengum nördaútrás dauðans - fengum að komast í kosningastúdíó CNN - við fylgdumst einmitt með þeirra kosningasjónvarpi á þriðjudeginum - og síðan uppáhalds Nibley okkar sem sagði okkur milljón yndislegar og æðislegar og skemmtilegar sögur sem renna seint úr okkar minnum ... sögur um forseta og fræga söngvara (já Puff Daddy, Christinu, Britney, Eric Clapton, Bítlanda og fleiri og fleiri)
restin af föstudeginum var í frí - og laugardagurinn var í frí sem var æðislega vel nýtt og ótrúlega skemmtilegt... svo á sunnudeginum skellti ég mér ásamt fabjúlöss Ólöfu og Eddu í Sex and the City túrinn og vóts hvað það var gamanus!!!
ok nóg af mér í millibili ....
útskrift ekki núna á lau heldur næsta lau - Ó EMM DJÍ !!!!
Hildur OUT!






